Það geta flestir verið sammála um það að fátt er kynþokkafyllra en mikið og þykkt skegg.
Viltu eiga langt líf? Þá er einfaldast að verða þér úti um eitt stykki ástarsamband með mér því hlátur er mín helsta útflutningsafurð
Hengja upp mynd? Ekkert mál. Henda upp einum Billy bókaskáp? Léttasta sem ég hef gert. Stjórna gröfu í Fjölskyldugarðinum? Gerði það með lokuð augun og heynartól. Ekkert verkefni sem snýr að viðhaldi heimilis er of erfitt fyrir mig.
Það er sama hversu vel þú reimar skóna þína. Ég mun heilla þig upp úr þeim...og það á mettíma. Líkar þér við langar gönguferðir við ströndina, blómvendi sem bíða þín þegar þú vaknar eða rómantískan kvöldverð sem ég elda sjálfur. Þetta er eitthvað sem ég kalla mánudag fyrir mína heittelskuðu.
Hérna getið þið heyrt fyrstu smáskífuna mína:
Ég veit fátt betra en að ljúka löngum degi með einu glasi af 1787 Chateau Lafite eða öðru álíka góðu rauðvíni (álíka á reyndar ekki við því það jafnast ekkert á við 1787 Chateau Lafite!?)
Þú hefur eflaust séð mig á fjölmörgum strætóskýlum sem andlit tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Menn geta svo túlkað það eins og þeir vilja að aðsóknin í deildina hefur margfaldast þau ár sem ég hef verið andlit hennar. Brottfall hefur svo verið töluvert um það leyti sem fólk kemst að því að ég er útskrifaður.
Ég t.d. væri svo sannarlega til í ganga með tilvonandi barn okkar en það eina sem ég get gert er að klæðast bol með því